Forsíða
60.372 greinar á íslensku.
Narges Mohammadi
Narges Mohammadi er íranskur mannréttindasinni, vísindamaður og varaforseti Miðstöðvar verndara mannréttinda, sem er stýrt af mannréttindalögfræðingnum og Nóbelsverðlaunahafanum Shirin Ebadi. Í maí árið 2016 var hún dæmd til sextán ára fangelsis í Teheran fyrir að stofna og stýra „mannréttindahreyfingu sem berst fyrir afnámi dauðarefsinga“. Árið 2023, á meðan Mohammadi var enn í fangelsi, hlaut hún friðarverðlaun Nóbels fyrir „baráttu hennar gegn kúgun kvenna í Íran og fyrir mannréttindum og frelsi öllum til handa“.
Á tíma mótmælanna sem hófust vegna dauða Möhsu Amini í haldi írönsku siðgæðislögreglunnar árið 2022 gaf Narges Mohammadi út skýrslu þar sem farið var yfir kynferðislegt og líkamlegt ofbeldi gegn konum. Í janúar 2023 gaf hún út skýrslu þar sem farið var yfir aðstæður kvenna í Evin-fangelsi, meðal annars lista yfir 58 fanga og yfirheyrsluferlin og pyntingarnar sem þær hefðu verið beittar. 57 kvennanna höfðu varið samtals 8.350 dögum í einangrunarvist. 56 þeirra voru dæmdar til 3.300 mánuða samtals.
Vissir þú...

- … að fyrsta bannið við dauðarefsingum og pyntingum í nútímaríki var lagt árið 1786 í Stórhertogadæminu Toskana af Leópold 2. keisara?
- … að viðskiptaveldi Medici-ættarinnar var eitt hið fyrsta sem notaði höfuðbækur í bókhaldi sínu til að hafa eftirlit með inneignum og skuldfærslum?
- … að annar forseti Írans, Mohammad-Ali Rajai (sjá mynd), var myrtur eftir aðeins tvær vikur í embætti?
- … að lögreglan á Stór-Lundúnasvæðinu í Englandi er kölluð Scotland Yard eftir upphaflegum höfuðstöðvum lögregluliðsins í Whitehall-höll, þar sem aðalinngangurinn sneri út að götu í Westminster sem heitir Great Scotland Yard?
- … að HMS Prince of Wales, sem kom til Íslands árið 2022, er stærsta herskip sem komið hefur til landsins?
Fréttir

- 17. júlí: Júlía Svyrydenko (sjá mynd) verður forsætisráðherra Úkraínu eftir uppstokkun í ríkisstjórninni.
- 12. júlí: Samið er um þinglok á Alþingi eftir að 71. grein þingskaparlaga er beitt til að stöðva málþóf stjórnarandstöðunnar um frumvarp ríkisstjórnarinnar um veiðigjald.
- 1. júlí: Forsætisráðherra Taílands, Paetongtarn Shinawatra, er vikið úr embætti vegna ásakana um spillingu.
Yfirstandandi: Borgarastyrjöldin í Jemen • Borgarastyrjöldin í Súdan • Innrás Rússa í Úkraínu / Stríð Rússlands og Úkraínu • Stríð Ísraels og Hamas • Sundhnúkseldar • Sýrlenska borgarastyrjöldin
Nýleg andlát: Ozzy Osbourne (22. júlí) • Muhammadu Buhari (13. júlí) • Diogo Jota (3. júlí) • Magnús Þór Hafsteinsson (30. júní)
26. júlí
- 1983 - Einar Vilhjálmsson setti Íslandsmet í spjótkasti. Metið var sett á úrvalsmóti Norðurlanda og Bandaríkjanna og varð Einar sigurvegari.
- 1984 - David Lange varð forsætisráðherra Nýja Sjálands.
- 1989 - Robert Tappan Morris var dæmdur í þriggja ára skilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa skrifað Morris-orminn.
- 1992 - Fyrsta teygjustökk á Íslandi var stokkið í tilefni af fimm ára afmæli Hard Rock Café.
- 1993- Miguel Indurain sigraði Tour de France-hjólreiðakeppnina.
- 1993 - Stjórn Kristilega demókrataflokksins á Ítalíu ákvað að leysa flokkinn upp.
- 2009 - Íslamistasamtökin Boko Haram hófu uppreisn í Bauchi-fylki í Nígeríu.
- 2016 - Sólarorkuknúna flugvélin Solar Impulse 2 lauk hringferð sinni um hnöttinn.
- 2018 - Yfir 100 fórust í skógareldum í Grikklandi.
- 2024 - Sumarólympíuleikarnir eru settir í París.
Systurverkefni
|